Sól núna = rigning seinna

Ljótt er það! Sæmilegt veður helgina fyrir versló táknar bara eitt: að það mun rigna eldi og brennisteini á Þjóðhátíðina í Eyjum.  Nei, ég segi svona.  Vonandi ekki því þá fer ÍBV á hausinn. Drullumallið á Ísafirði lifir hinsvegar af öll veður enda nóg að eiga bíldruslu til að komast þangað.

Djöfullega dýrt inn á lokadjammið í Eyjum.  Tíuþúsund kall, takk fyrir!  Held að það sé laust í dallinn seinnipartinn frá Landeyjum og tólf tímum seinna klukkan fjögur um nóttina til Landeyja. Eins gott að djamma hratt og drepast ekki. Annars kemst viðkomandi ekki upp á land fyrr en á þriðjudag … í  fyrsta lagi.

Æ, rosalega er gott að vera orðinn gamall og lúinn og búinn með sukkkvótann.

Fjölmenning

Útlendingastofnun er stórmerkilegt fyrirbæri.  Þar innan borðs virðist starfa fólk sem er fullt af þvermóðsku og hatri gegn asísku fólki sem vill sameinast fjölskyldum sínum hérlendis.

Þau gera allt í sínu valdi til að valda þessu fólki sem mestum miska og sárindum. Vitna iðulega til einhverrar lagasetningar og reka svo fólk úr landi.  Aldrei reynt að rétta því hjálparhönd. Bara sagt þvert NEI og þar við situr.

Samt dælir þessi stofnun inn flugförmum af karlkyns aröbum sem eiga fátt sameiginlegt með okkur þegar kemur að stjórnmálum, trúmálum eða menningu. Karlrembur frá helvíti sem skilja ekki að dætur þeirra geti orðið ástfangnar af vestrænum mönnum.

Fjölmenning er draumsýn vinstrifólks á Norðurlöndum. Að þjóðarbrotin sameinist einn daginn og láti af erjum sínum.  Engin Evrópuþjóð vill í raun og veru fá strangtrúaða múslima frá miðöldum inn í samfélagið sitt.  Pólítísk rétthugsun bannar okkur að viðurkenna það.  Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.

Heimska þjóð

Meira en helmingur þjóðarinnar eru hálfvitar upp til hópa. Slefandi aumingjar sem kjósa aftur og aftur yfir sig tóma fávita og forseta sem neitar að fara á ellilaun.

Sama pakk styður heilshugar að erindreki kínverska kommúnistaflokksins eignist 3% landsins í gegnum ömurlegan leigusamning við gráðuga sveitalarfa fyrir 25 milljónir á ári næstu 40 árin með möguleika á framlengingu = ígildi eignarréttar. Þarna verður stofnað annað Hong Kong með girðingum og vopnuðum vörðum. Sannið þig til!

Við virðumst alltaf velja rangt þegar rétt blasir við okkur.  Fyrir seinna stríð veðjuðu skuggalega margir á Þýskaland og settu upp hundshaus þegar Bretar og Bandaríkjamenn tóku að sér vernd landsins.

Við létum forsetafíflið plata okkur til að kjósa gegn Icesave III sem var bara nokkuð sanngjarn samningur. Nú hangir yfir okkur mögulegur dómur frá EFTA sem mun setja okkur endanlega á hausinn.  Allt vegna þess að við erum vitleysingar upp til hópa.

Í næstu Alþingiskosningum blasir við að meira en helmingur þjóðarinnar mun kjósa íhald og fjósafasista sem þá taka aftur við stjórnartaumum landsins. Nýtt hrun blasir við en okkur er alveg sama meðan við getum endurnýjað bílinn og grillið og farið í sólarlandarferð.