Þangað leitar klárinn þar sem hann er kvaldastur

Að Þóra skuli hafa dirfst að taka þátt í starfi stjórnmálasamtaka sem eru ekki lengur til er stærsta ástæðan fyrir því að ekki má kjósa hana.  Samfylkingin er langt í frá Alþýðuflokkurinn sálugi.  Tómt Alþýðubandalagslið sem ræður þar ríkjum núna.

Sama lið og sitjandi forseti stýrði áður en hann slysaðist á Bessastaði fyrir sextán árum.  Hann má eiga stórpólítíska fortíð að baki en hún má ekki einu sinni hafa daðrað við stjórnmálin í æsku.  Enn og aftur eru gerðar ríkari kröfur til kvenna en karla.

Verst þykir mér þó að kjósendur virðast ætla að haga sér eins og klárinn sem leitar þangað sem hann er kvaldastur.  Virðast öll vera búin að gleyma klappstýruhlutverki sitjandi forseta fyrir útrásarræningjana fyrir ekki svo löngu.

Eiga tvær neitanir á Icesave að bæta fyrir þær syndir?  Komu þær neitanir ekki útrásarþjófunum best?  Trúir fólk því virkilega að Ólafur hafi gert þetta eingöngu fyrir þjóð sína.  Hvernig væri að vakna og finna ilminn af sjóðandi kaffipottinum!

Gott og vel.  Kjósið aftur yfir ykkur klappstýru kúgara og ræningja.  En þið skuluð ekki dirfast að kvarta um mitt kjörtímabil þegar þið hafið fengið upp í kok á karlinum sem þekkti ekki sinn vitjunartíma.

Að eftir sé að koma í höfn kosningu um ESB er ekki næg ástæða til að styðja þennan gosa til áframhaldandi setu á forsetastóli. Allir aðrir frambjóðendur hafa lofað að sjá til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla um inngöngu fari fram reyni ríkisstjórnin að sneiða framhjá henni.

Og það verður ekkert Icesave III.  Dómsorð í því máli mun birtast í byrjun september og forseti Íslands mun ekkert geta gert gagnvart þeirri niðurstöðu þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða.  Málið fór úr okkar höndum þegar við höfnuðum Icesave II.

Gleðilegt sumar

Sumarið er framundan með áætlun um að missa að minnsta kosti sex og helst fleiri kílógrömm og lækka sykurstuðulinn niður í viðráðanlega tölu.   Því læknirinn sagði mér að mæta ekki í tékk í byrjun september í sama ástandi og ég var núna síðast.  Hann er búinn að fá nóg af letinni í mér.

Hef fengið lokaséns til að snúa taflinu við.  Læknirinn spurði mig hreint út hvort ég vildi í raun léttast eða ekki.  Ég svaraði játandi og ætla að standa við það.  Er orðinn svo leiður á því að vera fituhlunkur með áunna sykursýki.

Langar ekki til að fara að sprauta mig með insúlínpenna í síðuna.  Hjáveituaðgerð er eiginlega ekki heldur í boði fyrir mig.  Gaur eins og ég sem hefur verið lengst af grannur á að geta orðið þannig aftur án aðgerða.  Eða svo segir læknirinn mér.

Gleðilegt sumar!

Er draumurinn hans Dolla að rætast?

Evrukreppan skríður í hægð sinni upp álfuna og leggur hvert landið á fætur öðru undir járnhæl sinn. Fyrst Grikkland, Spánn og Ítalía.  Svo koll af kolli.  Þar til bara Þýskaland í fararbroddi ásamt Frakklandi og Norðurlöndunum eru eftir til að drottna yfir restinni.

Gott ef draumur Hitlers er ekki bara að rætast sjötíu árum síðar en hann áætlaði. Sameinuð (og buguð) Evrópa undir einni stjórn.  Og ekki einu skoti hleypt af. Þvílík snilld!

Ofan í þessa súpu þráir Samfylkingin meira en nokkuð annað að komast og drukkna ásamt hinum gjaldþrota þjóðunum.  Gleyma því að við getum valið okkur vini úr fleiri áttum.  Hefðum auðveldlega getað gerst bestu vinir Þýskalands fyrir seinna stríð en gerðum það ekki.

Því við eigum ekki að taka þátt í valdatafli Evrópu.  Eigum nóg með okkur sjálf. Illu heilli vorum við hernumin af Bretum og gengumst síðar undir hervernd Bandaríkjanna.  Tók okkur reyndar meira en sextíu ár að losna við þá.  En við nutum þó að mestu góðs af veru þeirra á Keflavíkurvelli.

Viljum við virkilega að Evrópa og Asía fari að bítast um okkur í framtíðinni?  Því það mun gerast ef við göngum inn í ESB og leyfum Huang Nubo skömmu áður að „leigja“ 3% af landinu undir kínverskan herflugvöll og herbúðir.  Það græðir enginn á háfjallagolfhóteli upp á óbyggðum Íslands.  Þvílíkt kjaftæði!  Bara fyrirsláttur svo Kínverjarnir geti laumast inn í landið.

Um daginn kom frétt um afburðarnámsmey frá Kína sem dúxaði á stúdentsprófinu þrátt fyrir tungumálahindranir.  Hún ætlar að reyna við læknisfræðina í haust og án efa kemst hún inn miðað við fyrri árangur.  Þið sem kunnið mannganginn í tafli skiljið hvert ég er að fara.  Ég myndi gera það sama ef ég stýrði stórveldi.  Koma leikmönnum fyrir víðsvegar um heiminn og svo skák og mát.

Nákvæmlega það sem múslimar hafa verið að gera í Evrópu síðustu áratugi. Innrásin frá Norður-Afríku og Asíu er fyrir löngu hafin.  Vegna þess að okkur vantaði ódýrt vinnuafl.  Græðgin mun verða okkur að falli.

NEI, ég er ekki rasisti, heldur raunsær í hugsun.  Wake up and smell the coffee! Af hverju leyfum við múslimum að byggja mosku sem konur mega svo ekki sækja til að biðja?  Gilda ekki jafnréttislög í landinu?

Fáranleg undanlátssemi sem þrífst í skjóli laga um trúfrelsi.  Fyrr á öldum voru Guðslög æðri landslögum.  Svo er ekki lengur.  Veraldleg lög eiga að ráða ríkjum. Svo við skulum láta af þessum skrípaleik.  Hættum að beygja okkur undir erlenda ósiði.