Land í höftum

Gjaldeyrishöftin hafa verið hert með lögum.  Bráðum verða skömmtunarseðlarnir dregnir fram.  Allar innfluttar vörur skammtaðar og skornar við nögl.  Megum ekki eyða gjaldeyrinum í rugl.  Mætti halda að skollin væri á heimsstyrjöld.

Svo ljúga menn að hert höft muni flýti fyrir afléttingu þeirra.  Djöfull getur fólk verið vangefið!  Verður bráðum eins og í seinna stríði þegar eldsneyti var naumt skammtað nema til einhvers sem tengdist stríðsrekstrinum gegn nasistum eða vörnum landsins.

Nú fyrst hefst sukkið og einkavinavæðingin.

Sakleysingjarnir

Djöfull er ég orðinn leiður á þessum Landsdómi.  Svo þurfum við að bíða í allt að sex vikur í viðbót þar til dómur yfir Geir H. Haarde loks fellur.  Og jafnvel lengur eftir því að saksóknari ákveður hvort ákæra skuli Gillz.  Andskotans sýndarmennska.

Geir verður sýknaður og kærur látnar niður falla gegn Gillz vegna skorts á sönnunargögnum.  Alltaf gott að hafa flokksskírteini upp á vasann þegar þrengir að.  Sérstaklega frá Sjálfselskuflokknum.

Frú forseti

Alls kyns vitleysingar hafa verið nefndir sem næsti forseti landsins.  Ástþór Magnússon hefur gefið sig fram í þriðja sinn.  Ólafur Ragnar forseti fer fram í fimmta sinn.  Sem eru mistök hjá honum.  Hefði betur hætt með sín sextán ár að baki í staðinn fyrir að fara í þann slag sem er fyrir höndum.

Persónulega lýst mér best á Þóru Arnórsdóttur fjölmiðakonu.  Eða Gerði Kristný rithöfund.  Nóg komið af gömlum stjórnmálapungum á forsetastóli.