Mjóddin

Kom við í Mjóddinni tvisvar á laugardaginn síðastliðinn. Fyrst á leið minni í Boðaþing til mömmu. Horfði að venju á eftir tvistinum bruna í burtu um leið og ég steig út úr tólfunni.

Þrammaði í Nettó fram að næsta vagni. Týndi til sitthvað fyrir gömlu. Ein af mínum uppáhaldsbúðum. Gott úrval af vörum sem fást varla í öðrum verslunum.

Kom svo aftur við á bakaleiðinni heim. Allt annað andrúmsloft. Erlent vespugengi fyrir utan og sitjandi gengi fyrir innan. Sveigði vel framhjá báðum gengjum minnugur frétta um árásir þeirra.

Hoppaði upp í fjarkann í gegnum Kópavog í stað þess að bíða lengur eftir tólfunni. Þori ekki að hanga þarna of lengi eftir að göngugatan lokar.

FIFA – Fix It For Argentina

Ekki tókst FIFA að fixa útslitin fyrir Argentínu í úrslitaleiknum gegn Spáni. Tókst það gegn Englandi með dómaranum hans Messi. Jafnvel þó slóvenski dómarinn hafi dæmt annað markið af Spáni með rassvasann fullan af mútúfé upp á von um vítaspyrnukeppni. Spánn var bara betri aðilinn.

Helvítið hann Trump var aldrei þessu vant til friðs upp á verðlaunapallinum og hvers manns hugljúfi. Stofan á RÚV var hins vegar alveg út að aka. Þekkti hvorki Claudia Sheinbaum forseta Mexíkó né Mark Carney forsætisráðherra Kanada sem stóðu við hlið Donalds og tóku einnig í spaðann á verðlaunahöfum. Var keppnin ekki líka háð í Mexíkó og Kanada?

Eftirtektarvert að fótboltagaurarnir nenntu varla að heilsa Sheinbaum og hoppuðu hratt yfir á Carney. Enda kvenfyrirlitning landlæg í karlaboltanum. Hvað þá hjá suðrænum þjóðum Ameríku og Evrópu.

Mikið er nú gott að þessi leiðindi eru að baki og gamla fólkið fær aftur dagskránna sína á RÚV ótruflaða.