Óæskilegt efni á TikTok

Fór allt í einu að fá fullt af myndböndum á TikTok frá fulltrúadeildarþingmanninum Brandon Gill frá Texas sem komst inn fyrir ári síðan fyrir Republikana og styður helvítið hann Trump af kostgæfni.

Lítur út eins og Superman með fullkomna eiginkonu og tvö börn. Hatar innflytjendur og vill að Bandaríkin hverfi aftur um svona 75 ár þegar konur voru heima og litað fólk hafði engin réttindi. Næsti Charlie Kirk gjörið svo vel.

Veit ekki af hverju þetta gerpi fór að birtast á TikTok. Var fljótur að fara í stillingarnar og útiloka efni frá honum.

JÁ!

Þegar verkalýðsleiðtogar og fjármagnseigendur taka höndum saman gegn einfaldri spurningu sem ríkisstjórnin vill leggja fyrir þjóðina 29. ágúst næstkomandi þá vitum við að svarið er JÁ.

Tveir aðilar sem hagnast á núverandi ástandi krónu, ofurvaxta og ókyrrðar í efnahagsmálum vilja ekkert ESB þar sem þau geta ekki lengur leikið á viðkvæma strengi þjóðarinnar sjálfum sér til góðs.

Barátta verkalýðs og atvinnurekenda hefur lengi verið leikrit til að halda niðri kjörum og réttindum vinnandi fólks. Hafa af þeim eignir með reglulegum hrunum og verðbólgubrennum til að viðhalda gjörspilltu fjármagns- og bankakerfi keyrðu áfram af græðgi og skorti á samkeppni.

Eitthvað sem elítan veit að fær ekki að viðgangast til lengdar með aðild Íslands. Er ekki komið að litla fólkinu sem heldur samfélaginu uppi. Fyrirtækjaeigendur hafa fengið nóg.

Evrópa eða Ameríka?

Á þessum víðsjárverðu tímum neyðumst við til að velja lið. Getum ekki lengur setið á milli og notið gæða úr báðum áttum.

Fylgja Evrópu og styðja lýðræði eða fylgja Ameríku og styðja nasisma MAGA.

Okkar er valið 29. ágúst.