„Meint“ nauðgun átti sér stað í Herjólfsdal samkvæmt dv.is. Aðrir netmiðlar tala um að maður „grunaður“ um nauðgun hafi verið handtekinn og færður til yfirheyrslu. Aðili sem fórnarlambið benti á sem kvalara sinn.
Af hverju er ekki hægt að skrifa að nauðgarinn hafi náðst? Hvers vegna þarf að dansa svona í kringum staðreyndir málsins? Rétt eins og fórnarlambið sé að ljúga eða hafi kallað ofbeldið yfir sig.
Skil vel að ákæruvaldið þurfi að stíga varlega til jarðar og tala um „meinta“ nauðgun en fjölmiðlar eru ekki bundnir af þeirri kvöð. Geta alveg fullyrt að nauðgarinn hafi verið handsamaður. Sjaldan sem saklaus aðili er hnepptur í gæsluvarðhald á Íslandi.
Hið sorglega er að enn telja allt of margir að nauðgun sé fórnarlambinu að kenna vegna klæðaburðar, ölvunar eða daðurs. Að nauðgarinn ráði ekki við sig vegna greddu og neyðist til að þröngva lóknum milli fóta stúlkunnar til að svala fýsnum sínum. Hennar glæpur er að vera svona andskoti girnileg.
Persónulega finnst mér að stilla eigi nauðgurum og barnaníðingum upp við vegg og skjóta þá til bana. Þeir ásamt morðingjum eru lægsta lífsformið. Óðir hundar sem þrífast ekki innan samfélagsins og valda bara sársauka með tilveru sinni.