Hefndarskyldan

Vissulega má ég færa þakkir fyrir að hafa sloppið ótrúlega vel frá nánum kynnum við framenda Mercedes-Benz Sprinter sendibíls.

Samt er ég aðallega reiður og haldinn hefndarhug í garð bílstjórans sem rúllaði á mig. Alveg er ég viss um að hann sleppur með skrekkinn. Hvorki dóm né sekt. Fær í mestalagi punkta á ökuferilsskrá sína.

Vil því komast að því hver hann er og hvar hann á heima. Brjóta á honum að minnsta kosti aðra hnéskelina í takt við forna íslenska hefndarskyldu. Það er sanngjarnt!

Færðu inn athugasemd