Afi minn í útlöndum

Ég hitti aldrei föðurafa minn bandarískan.  Hann dó áður en ég fæddist og hefði sennilega ekkert viljað við mig kannast hefði hann lifað. Ekki vitjaði hann sonar síns, þ.e. föður míns, meðan hann lifði.

Skrifaði afabróður mínum Paul bréf þegar ég var sextán ára. Hafði afritað heimilisfangið aftan af bréfi sem hann sendi pabba. Paul svaraði og lýsti eldri bróður sínum fyrir mér í svo mörgum orðum:

Einfari sem þótti ekkert betra en að fara í göngutúra í skóginum.  Stundum niður að á að renna fyrir fisk.  Átti til að skipta skapi og gat verið fljótur upp. Var listhneigður og flinkur í höndunum.

Lýsing sem passar að stórum hluta við okkur systkinin.  Skrítið að fá svo nákvæma persónulýsingu frá frænda handan hafsins sem hefur bara hitt pabba okkar.

Hugsa stundum til þess að þessi nítján ára drengur var sendur yfir hafið úr friðsælu sveitinni sinni til Íslands í braggalíf og kulda.  Hér náði hann þó að heilla fallega og ákveðna jafnöldru sína með eldrautt hár og lögulega leggi. Eða öfugt. Veit ekki.  Niðurstaðan varð að minnsta kosti lítill drengur.

Skilst að afi hafi ekki verið sendur á vígstöðvarnar í Evrópu vegna ungs aldurs og fyrir að hafa logið til um nafn.  Velti því stundum fyrir mér hvort fleiri ástæður hafi ekki ráðið þar um.  Til að mynda andlegt atgervi.  Grunar að margir drengjanna sem biðu kallsins hér hafi ekki gengið alveg heilir til skógar.  En það er reyndar bara mín persónulega kenning.

Ófullkominn

Náungi lét þess getið að ég lyktaði hvorki né gengi eins og feitur maður.  Ég kom af fjöllum.  Hvernig lykta og ganga feitir menn?  Í huga mér er ég enn grannur.  Geng þannig og fer reglulega í steypibað.

Gerði það reyndar ekki eins reglulega þegar ég lifði á bjór.  Þá lyktaði ég eins og róni og hugsaði lítið um sjálfan mig.  Átti erfitt með að fela vankanta mína.  Reyndi það þó þegar ég mætti til vinnu. Andardrættinum gat ég þó ekki leynt. Yfirmaður minn reyndi að benda pent á það án árangurs.

Í dag vil ég trúa því að ég sé ekki eins blindur á eigin galla.  Látið mig annars vita.  Verð mjög þakklátur fyrir allar ábendingar til betri vegar.  Hef fyrir löngu síðan sætt mig við að vera ekki fullkominn.

Tvö kjörtímabil til að hreinsa upp skítinn

Merkilegt að nú bíður fólk spennt eftir að geta kosið aftur íhald og fjósafasista til valda í landinu.  Liðið sem setti okkur á hausinn!  Hvernig væri nú að hugsa aðeins og meta árangur sitjandi ríkisstjórnar mínus umsóknina að ESB?

Í kringum okkur eru lönd eins og Grikkland að fara á hausinn vegna þess að þau neita að horfast í augu við skuldavandann.  Það höfum við gert en jafnframt hægt á öllu efnahagslífinu til að halda sjó. Slíkt skilja ekki sjálfselskir og samvinnusinnaðir.

Þau vilja keyra allt aftur til 2007 þegar svartur Range Rover var vinsælasti fjölskyldubíllinn og enginn gat verið þekktur fyrir annað en að búa að minnsta kosti í vel búnu raðhúsi.  Fátæklingar sem fengu ekki lán bjuggu í blokkum.

Smávægileg fjármálakreppa ríkir í hinum vestræna heimi og við viljum fara að skipta um stjórn vegna þess rétt eins og illa gefnir bandarískir kjósendur sem kusu tvisvar yfir sig George Bush yngri. Skilja ekki að það þarf tvö kjörtímabil til að greiða upp syndir fyrri stjórnar.

Tvö kjörtímabil vinstri stjórnar þarf einnig til að hreinsa upp viðbjóðinn sem Sjálfstæðisframsókn skildi eftir sig.  Annars náum við ekki aftur landi í fjármálum landssins. Sýnum smá skynsemi og auðmýkt. Högum okkur ekki eins og alkahólistar í leit að næsta sopa.