Ræflar og aumingjar

Í gegnum tíðina hef ég fullyrt svo margt um sjálfan mig án þess að geta staðið fyllilega í báða fætur á bak við orð mín.  Eitt af því er að ég sé ekki alkahólisti.  Eitthvað sem ég veit ekkert um þrátt fyrir að hafa náð að venja mig af kvölddrykkjunni fyrir svefninn.  Bjórbyttur geta vel átt við áfengissýki að etja.

Fyrir mér er ofneysla áfengis reyndar aumingjaskapur. Asnaleg afsökun þeirra sem nenna ekki að hætta drykkju. Fræðingarnir kalla það sýki til að fá eitthvað að gera í stað þess að viðurkenna að þau sem drekka of mikið eru bara ræflar og lúserar sem hafa gefist upp á lífinu.  Þannig var það að minnsta kosti í mínu tilfelli.

Þrælslundin

Fékk hugljómun í vikunni.  Skil loks núna hver stjórnar skipulögðum glæpum í landinu.  Auðvitað Fjórflokkurinn eins og öllu öðru.  Geta ekki látið glæpi renna sér úr greipum.

Af hverju hef ég látið hræða mig til þess að kjósa þessa glæpaklíku yfir mig aftur og aftur?  Hvað er eiginlega að mér.  Hvers vegna veiti ég ekki nýju framboði brautargengi?  Helvítis þrælslundin!

Árangur næst með langhlaupi

Haustið leggst yfir skerið og landinn flykkist á líkamsræktarstöðvarnar til að friða sína feitu samvisku eftir sumarsukkið.  Nú skal tekið á því.  Í kjólinn fyrir jólin og allt það.  Guess what!  Skyndilausnir duga ekki.

Gegn betri vitund er þorri Íslendinga alltaf tilbúinn í hvers konar átök.  Allt skal tekið með trukki.  Málinu reddað.  Skilja ekki að varanlegur árangur næst aðeins á löngum tíma og með litlum sigrum.

Ég veit vel að ég breytist ekki í George Clooney á nokkrum mánuðum.  Þarf aðeins meiri tíma til þess. En ég mun ná langleiðina með þrjósku og þolinmæði. Að skera utan af sér aukakílóin er langhlaup. Þau sem ætla að gera slíkt á spretthlaupi eru dæmd til mistakast.