Mannréttindi víkja fyrir réttlæti

Fólk sem er ekki tilbúið að fórna smá af eigin mannréttindum til að nauðgari náist er eitthvað klikkað í kollinum.  Málið snýst um að koma höndum yfir misyndismann en ekki hver var að röfla og hvað á tilteknu tíu mínútna tímabili í Herjólfsdal.

Stúlku var nauðgað og réttlæti henni til handa á að trompa allt annað. Skammist ykkar þykjustu mannréttindafrömuðir Wikileaks! Þið sem haldið hlífiskyldi yfir Julian Assange.

Hann á bara að drulla sér til Svíþjóðar í yfirheyrslu.  Hefur hann eitthvað að fela?  Eins og Svíar fari að framselja hann til Bandaríkjanna.  Fáranlegt! Vera hans í sendiráði Ekvadors er bara auglýsingabrella.

Lífið er rétt að byrja!

Dagurinn sem ég kveið fyrir í allt sumar rann upp í gær. Ég mætti í þriggja mánaða tékk upp á göngudeild sykursjúkra í Fossvogi.  Bjóst nú ekki við miklu, en þó einhverju.

Fyrir þremur mánuðum síðan blasti við að ég þyrfti að fara sprauta mig með insúlíni eða fara inn á Reykjalund og svo í magahjáveituaðgerð. Allt þrennt hræddi mig svo að ég sneri við blaðinu. Því ég vissi þá, og veit enn betur nú, að ég get alveg grennt mig sjálfur án inngripa og aðgerða.

Sá læknirinn minn brosa í fyrsta skipti í gær.  Svo ánægður var hann með mig.  Lá við að ég færi að skæla þar og þá.  Ég trúði varla niðurstöðunum. Þvílíkur vindur í seglin. Ætla aldrei aftur að þyngjast! Nú liggur leiðin einungis beint niður þyngdarskalann.

Doktorinn spurði mig hvort þetta hefði verið mikil fórn fyrir mig og ég svaraði strax NEI.  Ávinningurinn er svo miklu sætari en nammið.  Eða helvítis nartið eftir kvöldmatinn sem á að vera síðasta máltíð dagsins.  Meira segja gervikólað er að detta út.  Hef ekki lengur lyst á því.  Vatnið er svo miklu betra.

Sparibuxurnar eru orðnar víðar í mittið. Get rennt upp 66° regnstakknum mínum.  Gengið nokkuð hraustlega milli staða án þess að hníga niður af mæði.  Stigið fram úr rúminu við fyrsta símagal í stað þess að liggja áfram fram yfir hádegi.

Trúi núna að allt sé mögulegt.  Lífið er rétt að byrja!

„Heyrðu“

Af hverju segjum við alltaf „heyrðu“ í upphafi hverrar setningar?  Í Danmörku telst slíkt upphaf samræðna til dónaskapar.  Af hverju ekki hérna?  Þjáist íslenska þjóðin af heyrnarleysi?

Mín kenning er sú að við séum dónar og frekjur upp til hópa.  Í stað þess að biðja fólk um eitthvað segjum við þeim að gera það.  Boðháttur er ríkjandi málvenja á Íslandi.  Jafnvel í auglýsingum.

Á Íslandi snýst allt um að láta einhvern lúta að sinum vilja.  Drottnun og völd.