Fjölmenning vinstri kvenna

Fjölmenning er gæluverkefni íslenskra kvenna á vinstri vængnum.  Þær trúa því að allir kynþættir, þjóðir og trúarbrögð geti soðist saman í sömu súpu. Í krafti þeirrar trúar berjast þær fyrir karlkyns, arabíska flóttamenn sem vilja setjast hér að fyrst þeir komust ekki alla leið til Bandaríkjanna.

Hvað með arabískar konur sem komust ekki alla leið til fyrirheitna landssins?  Og börnin þeirra.  Af hverju eru þau ekki í Keflavík að Fitjum að sækja um pólítískt hæli? Kannski vegna þess að karlpungarnir þar skildu þær og börnin eftir í súpunni til að bjarga eigin skinni.

Ég varð hugsi þegar einn af téðum arabískum flóttamönnum lýsti því yfir að hann vildi setjast hér að.  Mennta sig og eignast fjölskyldu.  Sem sagt lokka einhverja íslenska stelpu inn í múslimskt hjónaband þar sem karlinn ræður öllu. Jafnvel lífi hennar og dætra þeirra.

Af hverju erum við að fylla landið af arabískum karlrembum?  Var ekki planið að ná fram jafnrétti? Ég skil engan veginn þetta dekur vinstri kvenna við karlkyns, arabíska flóttamenn.  Eru þær kannski að vonast eftir mannsefni?

Asnalegt

Get ekki komist yfir þá staðreynd að yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar hefur gerst sekur á prenti að konur sem klæði sig glyðrulega kalli yfir sig naugðun. Þessi maður er enn yfirmaður deildarinnar.  Hann var ekki færður til í starfi.

Sem sýnir bara og sannar að kynferðisglæpir eru ekki teknir alvarlega innan kerfissins.  Meðan svona þurs fær að ríkja yfir málaflokknum er útilokað að nokkur kona nái fram réttlæti sínu gegn þeim sem nauðgaði henni.  Gerandinn mun oftar en ekki sleppa með sinn glæp.  Og konunni kennt um allt fyrir að vera svona girnileg.

Allt of margir misvitrir flokkshestar eru yfirmenn í of fámennri lögreglu landssins. Kominn tími til að hreinsa þar út eins og í embættismannakerfinu. Gera duglega hausthreingerningu. Flokksskírteini á ekki að vera eina skilyrðið til að fá stjórnendastöðu.

Betra líf

Á laugardaginn fór ég á Spot og þurfti því að klæðast aftur brókunum sem ég keypti í lok apríl fyrir síðasta djamm. Þá pössuðu þær rétt svo utan um minn feita rass.  Núna gat ég komið einum og hálfum þumli milli mittis og buxnastrengs og varð að nota belti.

Þess vegna hljóta allar göngurnar og hjólaferðirnar í sumar hafa skilað sér.  Hef líka tekið mataræðið aðeins í gegn en ekki nóg. Borða allt of mikið á kvöldin. Væri annars töluvert grennri.  Helvítis nartþörfin fyrir svefninn.

Vonandi hefur langtímasykurinn lækkað samhliða. Annars verð ég sendur á Reykjalund og svo í hjáveituaðgerð.  Myndi sætta mig við dvölina en ekki aðgerðina. Slíkt er fyrir fólk sem getur ekki grennst sökum hægrar brennslu.  Ég hef bara verið latur.

Ég get þetta alveg.  Þurfti bara smá tíma til að átta mig.  Núna er ég kominn af stað.  Þolið komið aftur og allt í gangi.  Brennslan á fullt.  Þarf bara að auka hreyfinguna enn frekar og borða enn betur.

Er kominn á þann stall að una ekki innandyra í vondum veðrum.  Verð að fara út til að hreyfa mig óháð rigningu og roki.  Fæ annars kofaveiki og líður illa.  Blóðið verður að komast á hreyfingu í mínum digra skrokki.