Meint lýðræði

Þrátt fyrir gjörspillt samfélag þá erum við bara nokkuð heppin sem búum hérna á Klakanum … í samanburði við margar aðrar þjóðir.  Við erum góðu vön og myndum aldrei þola þau þriðju heims lífskjör aftur sem við bjuggum við á 19. öld.

Sagnfræðingur og viðmælandi á Útvarpi Sögu, hvers nafni ég náði ekki, heldur því sannlega fram að á Íslandi sé ekki elsta þjóðþing heimsins. Áður en við gengumst undir Noregskonung 1262 réðu þar morðóðir goðorðsmenn. Höfðingjar. Alls ekki þjóðin.

Eftir það tók við dómþing til 1800 sem réð engu.  Við endurreisnina 1845 fluttist þingið til Reykjavíkur þar sem gæðingar sveitahöfðingja eða þeir sjálfir tóku sæti. Enn ríkir sú regla nánast óbreytt samhliða breytingum á atvinnuvegum landsins í tímans rás.

Almenningur ræður engu frekar en á Þjóðveldisöld og er gabbaður á fjögurra ára fresti með hræðsluáróðri til að kjósa einn af fjórflokkunum.  Valdastéttirnar ráða enn sínu og níðast áfram á okkur ræflunum þrátt fyrir meint lýðræði.

Friðhelgi nauðgarans

Nú verð ég sakaður um að vera kominn með leg!  Eins og það sé einhver móðgun.  Yrði bara stoltur af því að geta geta gengið með og fætt barn.  Nýjan einstakling.  En  úr því ég get það ekki þá ríf ég bara kjaft í staðinn.

Lögreglan á Selfossi þarf að tékka hvaða karlmenn á vissum aldri hengu í farsímunum sínum inn í Herjólfsdal aðfararnótt mánudagsins 6. ágúst milli kl. 05:35 og 05:45 til að bera saman við myndskeið úr öryggismyndavél en Hæstarétti lýst illa á það.  Slíkt sé spurning um friðhelgi einkalífsins.

Hvað með mannréttindi fórnarlambsins?  Nú var brotið á kynfrelsi hennar.  Telst það til friðhelgi gerandans að fá að sleppa með nauðgun vegna lagaklækja þriggja karlkyns Hæstaréttardómara?  Hefðu þeir dæmt á hinn veginn ef strák hefði verið nauðgað?

Hvað með það þó ungir menn á vissum aldri sem voru að gæla við gemsana sína á téðu tímabili séu boðaðir til yfirheyrslu.  Allir eru þeir saklausir uns sekt er sönnuð.  Útilokunaraðferðinni er beitt og hinn seki týndur úr hópnum.  Réttlætið sigrar og vesalings stúlkan nær kannski að vinna sig fyrr úr myrkrinu.  Er það svo slæmt!?

Nei, það vilja pungarnir í Hæstarétti alls ekki.  Samkvæmt þeim er nauðgun kækur.  Til hvers að dæma fyrir slíkt.  Hvað þá þegar meint fórnarlamb var undir áhrifum áfengis.  Slíkar stúlkur eru bara að biðja um það.

Holdsveikir

Ég er einn af þeim sem hef verið án vinnu lengur en ár og telst því vera langvarandi atvinnulaus.  Og miðað við umræðuna í fjölmiðlum er ég byrði á samfélaginu.  Aumingi sem nennir ekki að vinna.

Skiljanlega minnka líkurnar á ráðningu því lengur sem viðkomandi er á atvinnuleysisskrá.  Talsmaður verslunarinnar vill af þeim sökum ekki að Alþingi framlengi fjórða árið heldur galdri fram þúsundir starfa upp úr hatti sínum. Annars munum við glata getu og kunnáttu til að vinna.

Í raun er þörf á fimm ára ramma fyrir atvinnulausa. Störfum fækkar enn frekar þó þúsundir hafi flúið land. Að færa okkur aumingjana frá Atvinnuleysistryggingasjóði til skuldugra sveitarfélaga leysir engan vanda.

Slíkt fegrar bara bókhaldið hjá Vinnumálastofnun rétt eins og átaksverkefni til sex eða tólf mánaða gera. Margir af þeim munu sennilega detta aftur inn á atvinnuleysisskrá að þeim tíma liðnum.  Jafnvel þau sem nýttu sér að fara aftur í nám.

Að ætla að þurrka út atvinnuleysi eftir efnahagshrun heillar þjóðar tekur lengur en þrjú til fjögur ár.  Og jafnvel verðum við að læra að sætta okkur við talsvert langtímaatvinnuleysi til frambúðar eins og flestar aðrar þjóðir Evrópu.

En eins og ég sagði í upphafi þá er engu líkara en að við amlóðarnir eigum bara að gufa upp í loftið og hverfa.  Við erum holdsveikissjúklingar samtímans. Enginn vill af okkur vita.  Kannski er lausnin bara að slá okkur af og nota hræin í næstu landfyllingu.