Fallið

Megavikan er hættuleg.  Flaug á hausinn með pizzakassa í hendinni.  Hélt ég myndi ekki komast aftur á fætur.  Kona á jeppa kallaði til mín hvort ekki væri allt í lagi.  Mér leið eins og fávita.  Feiti gaurinn sem getur ekki gert tvennt í einu; gengið og haldið á kassa.

Mér var nær að falla fyrir svo kolvetnisríkum mat.  Skamm, skamm!  Einhver er að segja mér að bæta mataræðið og sleppa hveitinu.  Og grenna mig.  Ekkert grín að lenda í götunni með alla þessa yfirvigt.  Hnéin eru stokkbólgin og mig verkjar í allan skrokkinn.  Má víst þakka fyrir að ekki fór verr.

Blessuð blíðan

Hlýtt loft blés framan í borgarbúa í gær og blíðan heldur víst áfram næstu daga. Snilld. Syndaflóðið dagana á undan var nefnilega ekki spennandi en þarft því gróðurinn hefur þvílíkt tekið við sér.

Heldur seint því að rétt mánuður er eftir af sumrinu ef við erum heppin. Útilegunum fer fækkandi eftir allt fiskátið á Dalvík síðustu helgi. Þangað brunar liðið með skuldahalana í eftirdragi til að fá gefins fiskmeti í ginið á sér.

Að lokinni dagsskrá fyllast svo fangageymslurnar af ölkærum heimilisfeðrum sem eiga erfitt með að fara sofa og slysast til að dangla í næsta mann fyrir að sussa á sig. Menningarnótt er framundan. Þá ýta sömu menn sauðdrukknir áfram barnakerrum.

Ekki mér að kenna

Nú hef ég þraukað í þrjú ár án vinnu.  Minni menn væru löngu búnir að taka eigið líf.  Sem betur fer er ég ekki þannig gerður að sjálfsmorð komi til greina.  Slíkt er nefnilega eigingirni og aumingjaskapur sem leysir engan vanda.  Hef reyndar aldrei íhugað slíkt.

Bjóst ekki við að verða svona lengi án vinnu.  Langar stundum til að klára B.A. gráðuna en get það ekki því ég fæ aldrei námslán í gegnum bankakerfið vegna þess að smáfiskar eins og ég erum steiktir á teini svo megi afskrifa hjá stórlöxunum sem settu landið á hausinn.

Eina sjáanlega leiðin út úr ógöngunum er að lýsa mig gjaldþrota.  Og það fyrir einhverja smáaura.  Kemst ekkert frekar í nám þannig en kannski fyrr en núna.  Er orðinn langþreyttur á að fara niður á skeljarnar til að biðja mér vægðar frammi fyrir gráðugum bankayfirvöldum sem skeyta engu.

Ég er fastur í öngstræti.  Kemst hvorki aftur á bak né áfram.  Og hrunið var ekki einu sinni mér að kenna!