Fornaldarhugsun

Neðst á síðu 7 í smáauglýsingum Fréttablaðsins í gær birtist eftirfarandi texti á rússnesku:

„Ef kristið fólk þegir þá talar Biblían…

Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né
kynvillingar, þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa.“

Á biblian.is hljóðar textinn svona.  Sennilega munurinn á gömlu og nýju þýðingunni:

„9Villist ekki! Enginn sem er saurlífur, dýrkar falsguði eða lifir í hórdómi, enginn karlmaður sem lætur nota sig eða notar aðra til ólifnaðar, 10enginn þjófur eða fégráðugur, vínsvallari, rógberi eða fjársvikari fær að erfa Guðs ríki.“

Tók sjálfur ekki eftir þessu fyrr en þras tók að birtast á netinu.  Fletti svo upp í hinni helgu bók á netinu til að staðfesta nöldrið.  Bý nefnilega ekki sjálfur svo vel að eiga þá rykföllnu skruddu sitjandi á bókahillunni.

Klerkur rússneska safnaðarins vill engu svara.  Gildir einu.  Þvílíkur dónaskapur að birta slíkan texta á sjálfan gleðigöngudaginn.  Samt ekki við Fréttablaðið að sakast.  Textinn er á rússnesku en með tilvísun í Fyrra Korintubréf.  Ekki allir sem fatta að fletta því upp.

Ekki nóg með að þessir rússnesku réttrúnaðarklerkar séu að níðast á pönksveitinni Pussy Riot í sínu heimalandi, heldur vilja þeir fara að kúga okkur Íslendinga til hlýðni.  Hunskastu heim pokaprestur.  Hefur ekkert hingað að gera. Farðu og sleiktu rassgatið á Pútín!

Risaeðlan

Ríkið eða Vínbúðin er kölluð Mjólkurbúðin af fólki eldra en ég sem man vel eftir því þegar ríkið rak mjólkurbúðir.  Það rak einnig raftækjabúðir og bílasalar heyrðu undir ríkið þegar kom að innflutningi.

Gjaldeyrishöft ríktu. Allur innflutningur var háður duttlungum þeirra sem fóru með stjórn landsins. Flokksskírteini komu mönnum þó inn fyrir dyragaflinn hjá yfirvöldum.  Sérstaklega þau bláu og grænu.

Enn starfar ríkiseinkasala á áfengi þrátt fyrir að allar hinar sölurnar séu horfnar. Risaeðla sem selur ofurskattaðar veigar til þyrstra Íslendinga.  Sama hver situr við  stjórn landsins.

Bindindisfólk og uppþurrkaðir alkar virðast alltaf hafa yfirhöndina.  Ekkert breytist til batnaðar þeim sem eiga ekki í vandræðum með vínið.  Við verðum bara að sætta okkur við rassríðingar í hvert skipti sem við rekum nefin inn í Vínbúð … á vegum ríkissins.

American Me

Ég hitti aldrei föðurafa minn.  Hann var sveitastrákur frá Kentucky sem laug sig inn í bandaríska herinn vegna of ungs aldurs undir nafni frænda síns.  Og var því í kjölfarið bókstaflega settur á ís á Íslandi þar sem hann kynntist Þóru ömmu. She had flaming red hair and nice gams (fótleggi).  Rest is history.

Skrítið að eiga skyldmenni út frá Íslandi.  Eins og ofantalið sé ekki nóg þá var langafi minn í móðurætt Norðmaður. Gott ef Skoti nokkur hafi ekki laumað sér inn í ættina kringum aldamótin 1900.  Fengið kærkomna hlýju hjá vinnukonu eftir sjávarháska.

Í æsku var planið að heilsa upp á bandaríska og norska ættingja í Kentucky og Þrándheimi.  Sem er svolítið öfugsnúið með allt mitt skyldfólk hérna heima sem ég hef aldrei hitt.  Fjarskyldir ættingjar erlendis eru víst meira spennandi.