Höfðinu stungið í sandinn

Spara á 1.8 milljarða með því að fleygja fólki út af atvinnuleysisskrá en samt afla 3.3 milljarða aukalega með hækkun tryggingagjalds á fyrirtæki í landinu. Monta sig svo af ört minnkandi atvinnuleysi meðan bæjarfélögin og vinnuveitendur blæða.

Greinilega kosningavetur framundan.  Nú skal bókhaldið fegrað og kjósendum villt um sýn.   Skattgreiðendur sleppa ekki við kostnaðinn þó honum sé velt yfir á sveitarfélögin og atvinnurekendur.

Langtímaatvinnulausir hverfa ekki með því að við séum færð milli dálka í bókhaldinu.  Óskhyggjan ein skapar ekki störf handa okkur.  Noregur tekur ekki endalaust við fólki.  Síst af öllu ófaglærðum.

Bandaríki Evrópu verða aldrei

Ha-Joon Chang hagfræðingur og gestur í Silfri Egils kom inn á mínar helstu efasemdir varðandi Evrópusambandið.  Þar ríkir engin sameiginleg þjóðarvitund eins og í Bandaríkjum Norður-Ameríku.

Í Ameríku tekur alríkið á sig verstu höggin sem California þarf að þola.  Í Evrópu er Grikkland sett í skammarkrókinn og skikkað til að draga eitt saman seglin.  Evrópa verður aldrei Norður-Ameríka.  Þar skilja að tvær aldir og tvö stríð.  Sagan sjálf.

Þrettán ára módel

Óttablandið að sjá miðalra mæður pimpa út barnungar dætur sínar í fyrirsætukeppni  Elle.  „Hún er þréttán ára módel með möndlulaga augu“ söng Bubbi um árið.  Úti í heimi bíða gamlir kallar spenntir eftir stúlkunum. Ætla svoleiðis að skemmta sér með þeim á snekkjunum sínum.

Breskur rannsóknarblaðamaður kom upp um ein slík áform fyrir nokkrum árum síðan með falinni myndavél.  Einhverjir gamlir, franskir delar voru handteknir í kjölfarið með vasana fulla af Viagra.  Voru víst háttsettir í tískubransanum með plan um að negla útúrdópuð stúlkubörnin á hafi úti.

Svo jarma mæðurnar bara sælar að það sé hugsað svo vel um stúlkurnar úti í heimi.  Heldur betur!  Séð um að þær missi meydóminn undir áhrifum eiturlyfja í hendur vina og jafnaldra Dominic Strauss-Kahn.

Mömmurnar hugsa sennilega sem svo að stelpurnar hafi bara gott af því að vera afmeyjaðar í útlöndum. Hvar stendur skrifað að fyrsta kynlífsreynsla táningsstúlkna þurfi að vera nauðgun af hendi eldri karlmanns? Skammarlegt!