Asnalegt

Get ekki komist yfir þá staðreynd að yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar hefur gerst sekur á prenti að konur sem klæði sig glyðrulega kalli yfir sig naugðun. Þessi maður er enn yfirmaður deildarinnar.  Hann var ekki færður til í starfi.

Sem sýnir bara og sannar að kynferðisglæpir eru ekki teknir alvarlega innan kerfissins.  Meðan svona þurs fær að ríkja yfir málaflokknum er útilokað að nokkur kona nái fram réttlæti sínu gegn þeim sem nauðgaði henni.  Gerandinn mun oftar en ekki sleppa með sinn glæp.  Og konunni kennt um allt fyrir að vera svona girnileg.

Allt of margir misvitrir flokkshestar eru yfirmenn í of fámennri lögreglu landssins. Kominn tími til að hreinsa þar út eins og í embættismannakerfinu. Gera duglega hausthreingerningu. Flokksskírteini á ekki að vera eina skilyrðið til að fá stjórnendastöðu.

Betra líf

Á laugardaginn fór ég á Spot og þurfti því að klæðast aftur brókunum sem ég keypti í lok apríl fyrir síðasta djamm. Þá pössuðu þær rétt svo utan um minn feita rass.  Núna gat ég komið einum og hálfum þumli milli mittis og buxnastrengs og varð að nota belti.

Þess vegna hljóta allar göngurnar og hjólaferðirnar í sumar hafa skilað sér.  Hef líka tekið mataræðið aðeins í gegn en ekki nóg. Borða allt of mikið á kvöldin. Væri annars töluvert grennri.  Helvítis nartþörfin fyrir svefninn.

Vonandi hefur langtímasykurinn lækkað samhliða. Annars verð ég sendur á Reykjalund og svo í hjáveituaðgerð.  Myndi sætta mig við dvölina en ekki aðgerðina. Slíkt er fyrir fólk sem getur ekki grennst sökum hægrar brennslu.  Ég hef bara verið latur.

Ég get þetta alveg.  Þurfti bara smá tíma til að átta mig.  Núna er ég kominn af stað.  Þolið komið aftur og allt í gangi.  Brennslan á fullt.  Þarf bara að auka hreyfinguna enn frekar og borða enn betur.

Er kominn á þann stall að una ekki innandyra í vondum veðrum.  Verð að fara út til að hreyfa mig óháð rigningu og roki.  Fæ annars kofaveiki og líður illa.  Blóðið verður að komast á hreyfingu í mínum digra skrokki.

Afskrifið okkur ekki!

Kosningar eru í nánd og rugludallarnir sem vilja verja sæti sín virðast hafa gleymt þeim fjölda fólks sem eru enn án atvinnu og við það að detta þar út af skrá. Virðast bara ætla að gleyma okkur meðan við færumst frá Atvinnuleysistryggingasjóði yfir til sveitarfélaganna.  Allt í lagi fyrir þau sem búa í Reykjavík en við hin hrynjum niður í bótum.

Hér er um að minnsta kosti 3.400 atkvæði að ræða.  Við munum kjósa eftir hjarta okkar. Eruð þið þingfólk tilbúið að missa af þeim atkvæðum?  Hugsið málið áður en þið afskrifið okkur kjánarnir ykkar! Við getum skilið milli stjórnarsetu og stjórnarandstöðu.