Risaeðlan

Ríkið eða Vínbúðin er kölluð Mjólkurbúðin af fólki eldra en ég sem man vel eftir því þegar ríkið rak mjólkurbúðir.  Það rak einnig raftækjabúðir og bílasalar heyrðu undir ríkið þegar kom að innflutningi.

Gjaldeyrishöft ríktu. Allur innflutningur var háður duttlungum þeirra sem fóru með stjórn landsins. Flokksskírteini komu mönnum þó inn fyrir dyragaflinn hjá yfirvöldum.  Sérstaklega þau bláu og grænu.

Enn starfar ríkiseinkasala á áfengi þrátt fyrir að allar hinar sölurnar séu horfnar. Risaeðla sem selur ofurskattaðar veigar til þyrstra Íslendinga.  Sama hver situr við  stjórn landsins.

Bindindisfólk og uppþurrkaðir alkar virðast alltaf hafa yfirhöndina.  Ekkert breytist til batnaðar þeim sem eiga ekki í vandræðum með vínið.  Við verðum bara að sætta okkur við rassríðingar í hvert skipti sem við rekum nefin inn í Vínbúð … á vegum ríkissins.

American Me

Ég hitti aldrei föðurafa minn.  Hann var sveitastrákur frá Kentucky sem laug sig inn í bandaríska herinn vegna of ungs aldurs undir nafni frænda síns.  Og var því í kjölfarið bókstaflega settur á ís á Íslandi þar sem hann kynntist Þóru ömmu. She had flaming red hair and nice gams (fótleggi).  Rest is history.

Skrítið að eiga skyldmenni út frá Íslandi.  Eins og ofantalið sé ekki nóg þá var langafi minn í móðurætt Norðmaður. Gott ef Skoti nokkur hafi ekki laumað sér inn í ættina kringum aldamótin 1900.  Fengið kærkomna hlýju hjá vinnukonu eftir sjávarháska.

Í æsku var planið að heilsa upp á bandaríska og norska ættingja í Kentucky og Þrándheimi.  Sem er svolítið öfugsnúið með allt mitt skyldfólk hérna heima sem ég hef aldrei hitt.  Fjarskyldir ættingjar erlendis eru víst meira spennandi.

Gleðigangan

Nennti ekki niður í bæ að glápa á gleðigönguna.  Núna eru hérlendir samkynhneigðir komnir með flest ef ekki öll sambærileg réttindi á við gagnkynhneigða.  Er þá ekki sigurinn unninn og botninn dottinn úr göngunni?

Nei, nú skal barist áfram fyrir mannréttindum transfólks. Hef lengi, og kannski ranglega, talið mig víðsýnan og frjálslyndan í hugsun og viðurkenni fúslega að ég skil ekki alveg pælinguna á bak við kynskipti.

Næ að einstaklingur er fæddur í líkama gagnstæðs kyns.  Má ekki hið sama segja um homma og lesbíur?  Nei, það er víst ekki.  Transfólk þarf á kynskiptum að halda til að verða heilt á sálinni.  Eða svo segja geðlæknar.

Hvað veit ég!