Síðasti dansinn

Þjóðhátíð að baki með þrjár tilkynntar nauðganir, fjölda slagsmála og yfir 50 fíkniefnamál á afrekaskránni.  Áherslan hjá Eyjalöggunni var víst að ná sem flestum neysluskömmtum.  Ekki var stemning fyrir að útúrdópað lið vafraði um dalinn.

Halló! Megnið af liðinu var útúrdrukkið í dalnum. Hverju munaði um einhverja dópræfla. Svo er alveg fáranlegt að láta ungliðahreyfingar hjálparsveitanna sjá um að gæta svæðissins gegn einni djammnótt.

Þetta lið gengur um í hópum maulandi popp og pylsur.  Tilgangslaust að hafa þau kjagandi um upplýsta svæði dalsins í endurskinsvestum.  Tjaldsvæðin eru alveg skilin útundan.  Þar fara nauðganirnar fram.  Í myrkrinu og fjarri glaumnum uppi í brekku.

Meðan ekki er tekið almennilega á gæslunni og nauðganir teknar alvarlega, þá munu hvers kyns viðbjóðir halda áfram að sækja Þjóðhátíðina heim þess fullvissir að í skjóli myrkurs og hávaða frá sviðinu muni þeir ná sínu fram og sleppa við refsingu.

Lausnin er að láta atvinnufólk í öryggisgæslu sjá um gæsluna í dalnum.  Sendið þessa hjálparsveitakrakka heim til sín.  Þau gera ekkert gagn.  Takið upp gæslu þar sem tjöldin standa.  Stillið upp vörðum með vissu millibili.  Lýsið upp svæðið.

Og síðast en ekki síst.  Hleypið Stígamótum aftur inn í dalinn.  Bleikir fílar gerðu ekkert gagn.  Voru bara leiktjöld fyrir fjölmiðla og annað trúgjarnt fólk. Sölubrella eyjaskeggja til að þagga niður í gagnrýnisröddum upp á landi.

Græðgin virðist vera fyrir öllu hjá ÍBV.  Sálarlíf gesta hátíðarinnar skiptir engu.  Síst þeirra sem er nauðgað.  Mikilvægara var að greiða útbrunnum söngvara strákabands 9 milljónir fyrir að jarma í hljóðnemann í 90 mínútur en að koma í veg fyrir nauðganir með almennilegri gæslu.

Hálfvitaþjóðin

Mikið var sorglegt að sjá þessar fáu, tryggu og gömlu hræður hylla forsetahjónin á Austurvelli.  Restin sat sem fastast á túninu og teygaði öl í góða veðrinu. Lögreglan setti samt upp þrælabönd svo lýðurinn gæti ekki nálgast elítuna á leið inn á Alþingi.  Erfðahylling hin síðari varð að fara fram án mótmæla.

Ólafi ber að þakka að helmingur þjóðarinnar er búinn að missa allan áhuga á forsetaembættinu.  Það verður sennilega lagt niður eftir fimmta kjörtímabil hans. Íslendingar vilja ekkert með kóng hafa. Jafnvel þótt hann sé kjörinn af gamalmennum landsins.

Framboð Þóru Arnórsdóttur leið fyrir tengsl hennar við Alþýðuflokkinn gamla og Samfylkinguna. Og engu líkara var en að fávitar stýrðu baráttunni með allskyns klúðri eins og „Þórudeginum“. Come on! Hressa stelpan var klædd upp sem miðaldra kerling með gamaldags hárgreiðslu.  Eitthvað sem á ekkert við myndarlega unga konu.

Ekki var á bætandi að forsetinn herjaði á maka Þóru með allskonar dylgjum og kallaði hana „puntudúkku“.  Gott ef þau ummæli hafi ekki unnið honum inn enn meira fylgi.  Íslendingar eru rugludallar sem heiðra skúrkinn. Ég skammast mín stundum fyrir að tilheyra slíkum hópi hálfvita.

Ef mér skjátlast ekki á þessi sami hópur af hálfvitum eftir að kjósa aftur yfir sig hrunflokkana að ári óminnug þess hverjir komu landinu á hausinn.  Þangað leitar klárinn þar sem hann er kvaldastur.  Íslenskri þjóð er ekki viðbjargandi!

Lægsta lífsformið

„Meint“ nauðgun átti sér stað í Herjólfsdal samkvæmt dv.is.  Aðrir netmiðlar tala um að maður „grunaður“ um nauðgun hafi verið handtekinn og færður til yfirheyrslu.  Aðili sem fórnarlambið benti á sem kvalara sinn.

Af hverju er ekki hægt að skrifa að nauðgarinn hafi náðst?  Hvers vegna þarf að dansa svona í kringum staðreyndir málsins?  Rétt eins og fórnarlambið sé að ljúga eða hafi kallað ofbeldið yfir sig.

Skil vel að ákæruvaldið þurfi að stíga varlega til jarðar og tala um „meinta“ nauðgun en fjölmiðlar eru ekki bundnir af þeirri kvöð.  Geta alveg fullyrt að nauðgarinn hafi verið handsamaður.  Sjaldan sem saklaus aðili er hnepptur í gæsluvarðhald á Íslandi.

Hið sorglega er að enn telja allt of margir að nauðgun sé fórnarlambinu að kenna vegna klæðaburðar, ölvunar eða daðurs.  Að nauðgarinn ráði ekki við sig vegna greddu og neyðist til að þröngva lóknum milli fóta stúlkunnar til að svala fýsnum sínum.  Hennar glæpur er að vera svona andskoti girnileg.

Persónulega finnst mér að stilla eigi nauðgurum og barnaníðingum upp við vegg og skjóta þá til bana.  Þeir ásamt morðingjum eru lægsta lífsformið.  Óðir hundar sem þrífast ekki innan samfélagsins og valda bara sársauka með tilveru sinni.